Handbolti

Rakel Dögg skoraði eitt í sínum fyrsta leik með Levanger

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rakel Dögg Bragadóttir í leik með Stjörnunni.
Rakel Dögg Bragadóttir í leik með Stjörnunni. Mynd/Aleksandar Djorovic

Rakel Dögg Bragadóttir lék í gær sinn fyrsta leik með Levanger í norsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Levanger vann góðan útisigur á Njård, 23-22, og skoraði Rakel Dögg eitt mark í leiknum. Ágúst Þór Jóhannsson er þjálfari Levanger.

Liðið er í níunda sæti deildarinnar með sex stig en þetta var þriðji sigur liðsins í vetur. Njård er í tíunda stæinu með fimm stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×