Fótbolti

Stuðningsmaður Genoa úr lífshættu

Diego Milito leikur með Genoa
Diego Milito leikur með Genoa NordicPhotos/GettyImages

Stuðningsmaður ítalska liðsins Genoa sem varð undir liðsrútu Fiorentina eftir deildarleik liðanna í síðasta mánuði er kominn úr lífshættu að sögn ítalskra fjölmiðla.

Gabriele Amato varð fyrir því óláni að verða undir rútu Fiorentina-manna þegar hann var ásamt fjölda annara stuðningsmanna Genoa að mótmæla dómgæslunni í 3-3 jafntefli liðanna þann 15. febrúar.

Adrian Mutu skoraði umdeilt jöfnunarmark Fiorentina með síðustu spyrnu leiksins.

Amato var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús eftir slysið og hefur verið á gjörgæsludeild allar götur síðan.

Fyrir nokkrum dögum losnaði hann úr öndunarvél og mun hann vera á batavegi þrátt fyrir að hafa enn ekki geta talað.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×