Fótbolti

Cambiasso semur við Inter til 2014

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Esteban Cambiasso fagnar marki í leik með Inter.
Esteban Cambiasso fagnar marki í leik með Inter. Nordic Photos / AFP

Argentínumaðurinn Esteban Cambiasso hefur framlengt samning sinn við Inter á Ítalíu til loka tímabilsins 2014.

Gamli samningurinn hans átti að renna út í lok næsta tímabils en báðir aðilar voru áhugasamir um að ganga frá nýja samningnum sem fyrst.

Cambiasso kom til Inter frá Real Madrid árið 2004 eftir að spænska liðinu mistókst að fá hann til að framlengja samning sinn þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×