Fótbolti

Inzaghi hungraður sem aldrei fyrr - Stefnan sett á Basten og Baggio

Ómar Þorgeirsson skrifar
Filippo „Pippo“ Inzaghi.
Filippo „Pippo“ Inzaghi. Nordic photos/AFP

Gamli refurinn Filippo Inzaghi er ekki dauður úr öllum æðum hjá AC Milan þó svo að ítalska félagið sé orðað við stjörnuframherja á borð við Luis Fabiano og Klaas-Jan Huntelaar.

Hinn 36 ára gamli Inzaghi getur ekki beðið eftir næsta keppnistímabili á Ítalíu.

„Ef ég væri 28 ára þá væri AC Milan ekki að leita að nýjum framherja núna, það er á hreinu, en þar sem ég er 36 ára gamall skil ég þetta fullkomlega vel. Stefna félagsins er að yngja upp hjá sér og það er bara gott og blessað og ég gæti reyndar verið pabbi nokkurra leikmanna sem eru að koma upp í aðalliðið núna," segir Inzaghi í viðtali við Gazzetta dello Sport.

Inzaghi eða Pippo eins og hann er stundum kallaður setur stefnuna á að komast upp fyrir goðsagnirnar Marco Van Basten og Roberto Baggio í markaskorun. Basten skoraði 90 mörk á sínum tíma með AC Milan en Inzaghi er kominn með 70 mörk og Baggio skoraði 318 mörk á sínum ferli á Ítalíu í öllum keppnum en Inzaghi er þar kominn með 306 mörk.

„Ég verð eins og mannæta þegar ég kem inn á völlinn og veit að það er stutt í Basten og Baggio. Það hvetur mig til þess að halda áfram á fullu," segir Inzaghi.

Inzaghi státar reyndar af meti yfir flest mörk skoruð í Evrópukeppnum félagsliða en þar er hann efstur á blaði með 66 mörk ásamt Raúl hjá Real Madrid. Það verður að teljast ágætis árangur fyrir mann sem knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá Manchester United lét hafa eftir sér að væri „fæddur í rangstöðu."
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×