Íslenski boltinn

Stelpurnar gerðu jafntefli við Sviss

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingurinn Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði metin.
KR-ingurinn Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði metin. Mynd/Stefán

Íslenska 19 ára landsliðs kvenna gerði 1-1 jafntefli við Sviss í dag í undankeppni EM U19 kvenna en leikið er í Portúgal. Sviss komst yfir strax á þriðju mínútu en KR-ingurinn Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði metin fimm mínútum síðar.

Íslensku stelpurnar unnu 2-0 sigur á Portúgal í fyrsta leiknum sem fram fór á laugardaginn. Eyjastúlkurnar Þórhildur Stefánsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir skoruðu mörkin í þeim leik. Sviss vann 5-0 sigur á Rúmeníu í fyrsta leik sínum.

Tvær efstu þjóðir riðlisins komast áfram í milliriðla en síðasti leikur Íslands verður gegn Rúmeníu næstkomandi fimmtudag. Stelpurnar standa ágætlega að vígi fyrir lokaumferðina.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×