Fótbolti

Beckham tregur til að fara til Bandaríkjanna

AFP

Enski landsliðsmaðurinn David Beckham segist vera tregur til að snúa aftur til LA Galaxy í Bandaríkjunum eftir vel heppnaðar vikur sem lánsmaður hjá AC Milan á Ítalíu.

Ítalska félaginu tókst ekki að semja um kaupverð eða áframhaldandi lánssamning við LA Galaxy og því er allt útlit fyrir að kappinn verði að snúa aftur til Bandaríkjanna.

Samkvæmt BBC gæti ítalska félagið gefið út yfirlýsingu um málið síðar í dag.

"Ég veit að það verður ekki auðvelt að snúa aftur eftir allt sem hefur gerst hérna," sagði Beckham eftir grannaslag Milan og Inter í gær þar sem Inter hafði betur 2-1.

"Ég hef þegar sagt að ég vilji vera áfram hjá Milan. Ég hef ekki skipt um skoðun, en ég ræð litlu um þetta," sagði Beckham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×