Handbolti

Íslensku strákarnir unnu sigur gegn Grænlendingum

Ómar Þorgeirsson skrifar
Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason. Mynd/Stefán

U-21 árs karlalandslið Íslands í handbolta sigraði í kvöld u-21 árs landslið Grænlands 38-34. Staðan í hálfleik var 17-17.

Um vináttulandsleik var að ræða en liðin mættust á Grænlandi. Íslenska liðið kemur aftur til landsins á morgun.

Mörk Íslands í leiknum skoruðu:

Rúnar Kárason 9, Þröstur Þráinsson 4, Oddur Grétarsson 4, Bjarni Aron Þórðarson 4, Anton Rúnarsson 3, Asbjörn Friðriksson 3, Andri Heimir Friðriksson 3, Þórður Rafn Guðmundsson 3, Jóhann Karl Reynisson 2, Orri Freyr Gíslason 2 og Hjálmur Þór Arnarsson 1.

Í markinu varði Sveinbjörn Pétursson 7 bolta, Aron Rafn Eðvarsson 4 og Ingvar Guðmundsson 3.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×