Fótbolti

Ciro Ferrara tekur við Juventus

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Ranieri var rekinn frá Juve.
Ranieri var rekinn frá Juve.
Hinn 42 ára gamli Ciro Ferrara hefur verið ráðinn þjálfari Juventus. Hann tók við stjórninni af Claudi Ranieri þegar hann var rekinn undir lok leiktíðar og hefur nú verið ráðinn til frambúðar.

Hann kom liðinu í Meistaradeildina með árangri sínum þá en var áður yfirþjálfari unglingaliða félagsins.

Félagið vildi reyndar fá Luciano Spalletti, þjálfara Roma, til að taka við starfinu en það hugnaðist honum ekki.

Hann lék 307 leiki fyrir Juventus og 49 leiki fyrir ítalska landsliðið á glæstum ferli sínum sem leikmaður.

Sjá einnig:

Ranieri rekinn frá Juventus




Fleiri fréttir

Sjá meira


×