Körfubolti

Tindastólsmenn og ÍR-ingar komust í átta liða úrslit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Svavar Atli Birgisson var stigahæstur í liði Tindastóls.
Svavar Atli Birgisson var stigahæstur í liði Tindastóls. Mynd/Vilhelm

Tindastóll og ÍR komust í kvöld í átta liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta eftir örugga sigri. Tindastóll vann fimmtán stiga sigur á Blikum í Smáranum og ÍR-ingar unnu 60 stiga sigur á FSU í Kennaraháskólanum.

Svavar Atli Birgisson var með 25 stig í sigri Tindastóls á Breiðabliki og Friðrik Hreinsson skoraði 16 stig. Hjalti Friðriksson var stigahæstur heimamanna með 11 stig.

ÍR-ingar fóru létt með FSu þar sem Steinar Arason skoraði 33 stig í 119-59 sigri. Chris Caird skoraði mest fyrir FSU eða 14 stig.

Eftir þessa tvo leiki er ljóst hvaða lið mætast í átta liða úrslitunum sem fara fram um helgina.

Átta liða úrslit Powerade-bikars karla:

Laugardagur

KR-Tindastóll Kl. 18.00

Sunnudagur

Keflavík-Njarðvík Kl. 19.15

Snæfell-Stjarnan Kl. 19.15

Grindavík-ÍR Kl. 19.15

 














Fleiri fréttir

Sjá meira


×