Sport

Fjörtíu stiga sigur hjá körlunum í fyrsta leik

Ómar Þorgeirsson skrifar
Páll Axel Vilbergsson.
Páll Axel Vilbergsson. Mynd

Karlalandslið Íslands í körfubolta vann stórsigur, 93-53, gegn Möltu í fyrsta leik liðsins á Smáþjóðaleikunum í dag en staðan í hálfleik var 54-20 fyrir Íslandi.

Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur hjá Íslandi með 20 stig en Magnús Þór Gunnarsson, Sigurður Þorsteinsson og Þorleifur Ólafsson komu næstir með 12 stig hver.

Karlalandsliðið keppir annan leik sinn á leikunum á morgun þegar þeir mæta heimamönnum í Kýpur kl. 17.30 að íslenskum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×