Fótbolti

Del Piero semur á ný við Juventus

Ómar Þorgeirsson skrifar
Alessandro Del Piero.
Alessandro Del Piero. Nordic photos/AFP

Samkvæmt Gazzetta dello Sport hefur ítalski landsliðsframherjinn Alessandro Del Piero náð samkomulagi við Juventus um framlengingu á samningi sínum við félagið til ársins 2011.

Del Piero eða herra Juventus verður 35 ára á þessu ári og sýndi það og sannaði á síðasta tímabili að hann er ekki dauður úr öllum æðum og langt því frá.

Del Piero hefur verið hjá Juventus síðan árið 1993 en hann á einnig unglingaliðsleiki að baki með félaginu.

Í millitíðinni var hann hjá ítalska b-deildarfélaginu Padova þar sem hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik aðeins 16 ára gamall.

Del Piero hefur leikið 433 leiki með Juvenus og skoraði í þeim 188 mörk en hann hefur einnig verið fastamaður í ítalska landsliðinu frá árinu 1995 og skorað 27 mörk í 91 landsleik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×