Fótbolti

Hleb hættur við að fara til Inter - Velur Stuttgart frekar

Ómar Þorgeirsson skrifar
Alexander Hleb.
Alexander Hleb. Nordic photos/AFP

Samkvæmt Gazzetta dello Sport hætti Hvítrússinn Alexander Hleb á síðustu stundu við að fara til Inter en Ítalíumeistararnir voru búnir að ná samkomulagi við Barcelona um árs lán á leikmanninum og var það hluti af samningnum í leikmannaskiptunum á Zlatan Ibrahimovic og Samuel Eto'o.

Börsungar munu nú borga því sem nemur um 5 milljónum evra til Inter fyrir að taka lánið á Hleb út úr dæminu.

Hleb mun fremur vilja fara til Stuttgart þar sem hann lék áður en hann fór til Arsenal á sínum tíma og á betri möguleika á sæti í byrjunarliðinu.

Inter heldur hins vegar áfram leit sinni að sókndjörfum miðjumanni og samkvæmt Gazzetta dello Sport eru Antonio Cassano hjá Sampdoria, Deco hjá Chelsea, Ezequiel Lavezzi hjá Napólí og Wesley Sneijder hjá Real Madrid nú sagðir vera á óskalista félagsins eftir að ekki gekk að fá Hleb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×