Handbolti

Stórsigur hjá Lemgo en tap hjá GOG

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vignir átti fínan leik í dag.
Vignir átti fínan leik í dag.

Þriðja umferð EHF-bikarsins í handbolta var í fullum gangi og tvö Íslendingalið hafa þegar lokið sínum leikjum.

Lemgo vann afar auðveldan sigur á Buducnost frá Makedóníu, 46-23, og er komið með annan fótinn áfram í næstu umferð.

Vignir Svavarsson átti fínan leik í liði Lemgo og skoraði fjögur mörk. Logi Geirsson er sem fyrr frá vegna meiðsla.

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í GOG eiga erfitt verkefni fyrir höndum í seinni leiknum gegn serbneska liðinu Partizan Dunav eftir fjögurra marka tap á útivelli, 28-24, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×