Körfubolti

Engin afmælisgjöf til Helenu - tap í úrslitakeppninni í nótt

Helena Sverrisdóttir gerði sitt með TCU í nótt.
Helena Sverrisdóttir gerði sitt með TCU í nótt. Mynd/AP

Helena Sverrisdóttir átti fínan leik með TCU í úrslitakeppni Mountain West deildarinnar í nótt en það dugði þó ekki liði hennar sem eru úr leik eftir 75-84 tap fyrir UNLV.

Helena var aðeins tveimur stoðsendingum frá þrennunni en hún var með 16 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar auk þess að stela 3 boltum og hitta úr 4 af 7 skotum sínum.

TCU var komið 20 stigum undir í hálfleik, 23-43, en UNLV skoraði meðal annars 15 stig í röð í fyrri hálfleiknum. UNLV komst mest 22 stigum yfir.

Úrslitin eru mikil vonbrigði fyrir TCU-liðið sem kom í 3. sæti inn í úrslitakeppnina en lið UNLV var í 7. sæti í deildarkeppnini í vetur.

Helena fékk því enga afmælisgjöf frá liðsfélögum sínum en hún varð nefnilega 21 árs gömul í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×