Fótbolti

Íslenski boltinn á morgun: 24 leikir á dagskrá

FH-ingar geta varið Íslandsmeistaratitil sinn á morgun.
FH-ingar geta varið Íslandsmeistaratitil sinn á morgun. Mynd/E.Stefán

Alls fara 24 leikir fram í Íslandsmótinu á Íslandi á morgun. Leikið er í öllum deildin meistaraflokkanna nema efstu deild kvenna sem hlé er á vegna EM. Við skulum líta á hvað verður að gerast.



Pepsi-deild karla: FH getur orðið Íslandsmeistari

FH getur tryggt sér titilinn á morgun. Liðið á fimm leiki eftir og er ellefu stigum á undan Fylki. Til að verða meistari þarf FH að vinna Grindavík og Fylkir má ekki vinna Fjölni. Að sama skapi verður Fjölnir að vinna en ef liðið tapar gæti það lent langt á eftir öðrum liðum þar sem bæði ÍBV og Grindavík, sem eru í sætunum fyrir ofan, eiga eftir að leika tveimur leikjum fleiri en Fjölnir.

Leikirnir á morgun:

Fram-Stjarnan

Valur-Breiðablik

Fylkir-Fjölnir

FH-Grindavík



1. deild karla: ÍA verður að vinna og HK getur komist í 2. sæti

Skagamenn hreinlega verða að hysja upp um sig ef þeir ætla ekki að falla niður um tvær deildir á tveimur árum. Liðið er í slæmum málum eftir sigur Aftureldingar í gær og eiga erfiðan leik á Akureyri á morgun. ÍA er með 18 stig í 8. sæti en Afturelding er í 9. sætinu með 16 stig þegar fimm umferðir eru eftir, Afturelding á þó aðeins fjóra leiki eftir.



HK tekur á móti Fjarðabyggð og þar sem Haukar töpuðu í kvöld getur liðið komist upp í 2. sætið. Víkingur frá Ólafsvík er svo gott sem fallið en það gæti verið staðfest eftir leikina á morgun.



Leikirnir á morgun:

HK-Fjarðabyggð

KA-ÍA

Víkingur Ólafsvík - Þór



2. deild karla: Spennandi barátta um sæti í 1. deild


Það eru fjórir leikir í 2. deildinni á morgun. Topplið Gróttu er með 37 stig en Njarðvík getur með sigri komist í 35 stig. Reynir er með 31 stig og eiga erfiðan útileik á Króknum.

Leikirnir á morgun:

Víðir-BÍ/Bolungarvík

Tindastóll-Reynir Sandgerði

Höttur-KS/Leiftur

Magni-Njarðvík



3. deild karla: Lokaumferðin um helgina

Um helgina fer fram lokaumferðin í 3. deild karla og er hörð barátta um sæti í úrslitakeppninni á nokkrum vígstöðvum. Átta lið komast í úrslitakeppnina en hún hefst laugardaginn 29. ágúst þegar fyrri leikirnir í 8 liða úrslitum fara fram.

Í A-riðli hefur Ýmir tryggt sér sæti í úrslitakeppninni en baráttan um hitt sætið stendur á milli Ægis og Sindra en þau mætast einmitt í Þorlákshöfn á morgun. Í B-riðlinum er ljóst að KFS og Álftanes komast í úrslitakeppnina en þrjú félög berjast um eitt sæti í C-riðli. KV hefur þegar tryggt sér efsta sætið en svo koma þrjú félög jöfn að stigum, Hvíti Riddarinn, KFG og Berserkir en Hvíti Riddarinn og KFG mætast í Mosfellsbænum á laugardaginn. Í D-riðli eru Völsungar öruggir á toppnum en Huginn og Dalvík/Reynir heyja baráttu um annað sætið.

1. deild kvenna: Úrslitakeppnin hefst á morgun

Á morgun hefst úrslitakeppni 1. deildar kvenna með fjórum leikjum og er um að ræða fyrri viðureignir í 8-liða úrslitum. Í 1. deild kvenna var leikið í tveimur riðlum og komust fjögur efstu lið hvors riðils í úrslitakeppnina og tekur nú við útsláttarkeppni.

Viðureignirnar í 8-liða úrslitum eru:

Völsungur - HK/Víkingur

Sindri - ÍBV

FH - Þróttur R.

Selfoss - Haukar

Síðari leikir viðureignanna fara svo fram þriðjudaginn 25. ágúst og undanúrslitin hefjast laugardaginn 29. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×