Fótbolti

Jafntefli í toppslagnum

Barist í leiknum í gær.
Barist í leiknum í gær.
Juventus og Inter gerðu í gærkvöldi 1-1 jafntefli í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattpspyrnu.

Mario Balotelli kom Inter yfir á 64. mínútu en Zdenek Grygera jafnaði metin fyrir Juventus á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Portúgalinn Tiago, leikmaður Juventus, fékk að líta rauða spjaldið á 76. mínútu leiksins.

Inter er í efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 74 stig, tíu stigum á undan Juventus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×