Fótbolti

Inter að semja við Real Madrid um kaup á Sneijder

Ómar Þorgeirsson skrifar
Wesley Sneijder.
Wesley Sneijder. Nordic photos/AFP

Gazzetta dello Sport greinir frá því í dag að Inter sé nálægt því að ná samningum við Real Madrid um kaupverð á hollenska landsliðsmanninum Wesley Sneijder.

Talið er að kaupverðið sé á bilinu 16-18 milljónir evra en Real Madrid keypti Sneijder á 27 milljónir evra frá Ajax árið 2007.

Sneijder á sjálfur eftir að ná samkomulagi við Inter en það er ekki búist við því að það sé annað en formsatriði þar sem leikmaðurinn hefur verið að leita eftir því að komast frá félaginu í sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×