Íslenski boltinn

Óðinn frá Fram til Þórs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Óðinn Árnason
Óðinn Árnason Mynd/Vilhelm

Varnarmaðurinn Óðinn Árnason hefur yfirgefið herbúðir Framara og samdi til eins árs við uppeldisfélag sitt, Þór frá Akureyri. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Þór en að sama skapi blóðtaka fyrir Framara.

Óðinn lék með öllum yngri flokkum Þórs og tók sín fyrstu spor í meistaraflokki hjá félaginu.

Hann fór þaðan til Grindavíkur og lék með félaginu í fjögur ár þar sem hann stóð sig vel.

Þaðan fór hann til Fram þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár. Hann gat þó lítið leikið síðasta sumar sökum meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×