Fótbolti

Sampdoria slátraði Reggina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Emil Hallfreðsson í leik með Reggina fyrr á leiktíðinni.
Emil Hallfreðsson í leik með Reggina fyrr á leiktíðinni. Nordic Photos / AFP
Reggina mátti þola stórt tap, 5-0, fyrir Sampdoria í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Emil Hallfreðsson var í leikmannahópi Reggina en kom ekki við sögu í leiknum.

Reggina missti mann af velli með rautt spjald á nítjándu mínútu og var þá staðan þegar orðin 1-0 fyrir Sampdoria.

Liðið er því enn í botnsæti deildarinnar þegar það á þrjá leiki eftir á tímabilinu. Liðið er þó ekki nema þremur stigum frá öruggu sæti og á því enn möguleika á að bjarga sæti sínu í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×