Íslenski boltinn

Víðir sló út Þrótt en Keflavík fór áfram

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hjörtur Hjartarson og félagar í Þrótti eru úr leik í VISA-bikarnum.
Hjörtur Hjartarson og félagar í Þrótti eru úr leik í VISA-bikarnum. Mynd/Valli

Þróttur Reykjavík er úr leik í VISA-bikar karla eftir háðulegt tap gegn Víði í Garðinum. Keflavík sigraði á sama tíma lið Einherja.

Það þurfti bæði framlengingu og vítaspyrnukeppni til í leik Víðis og Þróttar en ekkert var skorað fyrr en liðin fengu að taka víti.

Víðir vann vítakeppnina, 3-2.

Keflavík lagði Einherja 2-0 með mörkum frá Stefáni Erni Arnarsyni.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×