Fótbolti

Totti lét blaðamenn hlaupa apríl

Nordic Photos/Getty Images

Francesco Totti, fyrirliði Roma, lét blaðamenn í Róm hlaupa apríl á blaðamannafundi í dag eftir því sem fram kemur á ítölskum miðlum.

Totti hefur átt í basli með meiðsli í ár eins og svo oft áður og þegar sat blaðamannafund í dag sagðist hann vera að koma frá lækninum, sem hefði borið sér slæm tíðindi.

"Ég hef það alls ekki gott í dag. Ég finn mikið til í hnénu og við skiljum ekki hvað er að. Ég má ekki æfa næstu 40 daga og það er ekki möguleiki að ég geti verið með í næsta leik," sagði Totti við dolfallna blaðamennina.

Nokkrum mínútum síðar tókst blaðamönnum hinsvegar að fá staðfestingu á því að fyrirliðinn hefði verið að stríða þeim í tilefni dagsins, en hann hefur reyndar ekki spilað nema 14 leiki í vetur með Roma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×