Fótbolti

Kaká ætlar ekki með Ancelotti til Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos/Getty Images

Brasilíumaðurinn Kaká var fljótur að slá á þær sögusagnir að hann ætlaði sér að elta þjálfarann Carlo Ancelotti frá AC Milan yfir til Chelsea.

„Ég segi það í síðasta skipti. Ég vil ekki fara frá Milan," sagði Kaká við Gazzetta dello Sport.

Hann er samt ekki bara orðaður við Chelsea í dag heldur er hann einnig orðaður sterklega við Real Madrid í kjölfar þess að Florentino Perez varð aftur forseti hjá félaginu.

Kaká er búinn að fá nóg af því að neita stanslaust þessum orðrómum og mun ekki gera það aftur.

„Ég mun hætta að tjá mig því annars verða orð mín eflaust bara tekin úr samhengi. Við milljónir stuðningsmanna Milan vil ég aftur á móti segja að ég hef valið og það er að vera áfram hjá Milan."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×