Fótbolti

Markalaust hjá Napoli og AC Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Beckham var svekktur eftir leikinn í kvöld.
Beckham var svekktur eftir leikinn í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

AC Milan varð af tveimur mikilvægum stigum í kvöld er liðið gerði markalaust jafntefli við Napoli á útivelli.

David Beckham spilaði allan leikinn fyrir Milan og Ronaldinho kom af bekknum. Leikmenn Milan fengu kampavín í hádeginu í gær vegna afmælis Brasilíumannsins og spurning hvort það hafi setið í liðinu í kvöld.

Milan í þriðja sæti deildarinnar með 55 stig en Inter er á toppnum með 69 stig en Inter lagði Reggina í dag. Emil Hallfreðsson ekki í leikmannahópi Reggina.

Napoli siglir lygnan sjó í ellefta sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×