Íslenski boltinn

Umfjöllun: FH vann óverðskuldað í Eyjum

Ellert Scheving skrifar
Atli Guðnason skoraði fyrir FH í dag.
Atli Guðnason skoraði fyrir FH í dag. Mynd/Stefán

Eyjamenn tóku á móti FH í rokinu í Eyjum í dag. FH-ingar fóru með sigur af hólmi en naumt var það. Eyjamenn börðust til síðasta blóðdropa og hefðu með heppni hæglega getað unnið leikinn.

Leikurinn byrjaði fjörlega og FH komst yfir eftir tíu mínútna leik. Atli Guðnason tók hornspyrnu sem fór í Tryggva Guðmundsson og í netið. Ljótt mark en þau gilda víst öll.

Eyjamenn girtu sig í brók og jöfnuðu á 16. mínútu eftir laglega sókn. Arnór Eyvar Ólafsson vann boltann á miðjunni, lék honum út á kant á Ajay Smith sem renndi boltanum á Þórarinn Valdimarsson en hann sendi boltann fyrir beint á kollinn á Tonny Mawejje sem skallaði í netið.

Leikurinn var afar skemmtilegur og hraður og bæði lið áttu góð færi en það var ekki fyrr en á 80. mínútu sem FH komst yfir.

Atli Guðnason fékk boltann í teig Eyjamanna eftir þunga sókn og átti ekki í neinum vandræðum með að skora framhjá markverði Eyjamanna.

Aftur neituðu leikmenn ÍBV að gefast upp og jöfnuðu á 87. mínútu en þar var að verki Ajay Smith. Matt Garner tók aukaspyrnu utan af kanti, spyrnan fór inn á teig þar sem mikil barátta var en boltinn endaði fyrir hægri löppinni á Ajay sem smellti tuðrunni í netið. Óverjandi fyrir Daða.

Leikinn þurfti því að framlengja en í henni voru Eyjamenn mun hættulegri og sköpuðu sér fleiri færi en hetja FH í dag var Norðmaðurinn Alexander Söderlund. Söderlund hafði komið inn á sem varamaður áður og ekki komist í neitt samband við leikinn og var áberandi slakasti leikmaðurinn á vellinum.

Sigurmarkið kom á 118. mínútu, eftir skyndisókn FH-inga rann boltinn fyrir Söderlund sem á einhvern óskiljanlegan hátt kom boltanum í netið.

Leiktíminn rann út og FH vann afar óverðskuldaðan sigur á baráttuglöðu liði ÍBV - meistaraheppni?

ÍBV-FH 2-3

0-1 Tryggvi Guðmundsson (11.)

1-1 Tonny Mawejje (16.)

1-2 Atli Guðnason (80.)

2-2 Ajay Smith (87.)

2-3 Alexander Söderlund (118.)

Hásteinsvöllur: Vestmannaeyjar. Áhorfendur: 630

Dómari: Örvar Sær Gíslason.

Skot (á mark): 21-19 (10-8)

Varin skot: Elías 5 - Daði 7

Horn: 7-12

Aukaspyrnur fengnar: 19-25

Rangstöður: 3-5

ÍBV (4-5-1):

Elías Fannar Stefnisson

Christopher Clements

Matt Garner

Þórarinn Ingi Valdimarsson

(70. Bjarni Rúnar Einarsson)

Yngvi Borgþórsson

Pétur Runólfsson

Andrew Mwesigwa

(52. Atli Guðjónsson)

Tonny Mawejje

Arnór Eyvar Ólafsson

(84. Viðar Örn Kjartanson)

Eiður Sigurbjörnsson

Ajay Leitch Smith

FH (4-3-3):

Daði Lárusson

Tommy Nielsen

Freyr Bjarnason

Ásgeir Gunnar Ásgeirsson

Pétur Viðarsson

Davíð Þór Viðarsson

Tryggvi Guðmundsson

Matthías Vilhjálmsson

Atli Guðnason

Guðmundur Sævarsson

(56. Björn Daníel Sverrisson)

(90.Hákon Hallfreðsson)

Atli Viðar Björnsson

(56. Alexander Söderlund)








Tengdar fréttir

Ajay Smith: Svöruðum gagnrýninni

Hinn bráðefnilegi Ajay Smith átti frábæran leik í liði ÍBV í dag en var vonsvikinn í leikslok. ÍBV tapaði fyrir FH, 3-2, í framlengdum leik í bikarnum í dag.

Davíð Þór: Lélegur leikur hjá okkur

“Þetta var lélegur leikur hjá okkur í dag en á móti kemur að Eyjamenn spiluðu mjög vel í dag og voru alls ekkert lakari aðilinn í leiknum,” sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH-inga eftir leikinn við ÍBV í dag. FH vann, 3-2, í framlengdum leik í bikarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×