Handbolti

Dregið í bikarkeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Árni Þór Sigtryggsson og félagar í Akureyri mæta FH-ingum á heimavelli.
Árni Þór Sigtryggsson og félagar í Akureyri mæta FH-ingum á heimavelli.

Dregið var í bikarkeppni karla og kvenna í handbolta nú í kvöld. Þó nokkrir athyglisverðir leikir verða á dagskrá.

Meðal leikja í karlaflokki má nefna að Akureyri tekur á móti FH og Stjarnan mætir Gróttu í Garðabænum.

Þrír úrvalsdeildarslagir eru í kvennaflokki. HK mætir FH, KA/Þór tekur á móti Víkingi og Fylkir leikur við Val í Árbænum.

Karlaflokkur:

ÍBV - Fram

ÍR 2 - Valur

Þróttur - Selfoss

Akureyri - FH

Haukar 2 - Haukar

Víkingur - Afturelding

Stjarnan - Grótta

ÍR - HK

Kvennaflokkur:

ÍBV - Fram

HK - FH

Grótta - Þróttur

Fylkir - Valur

Fjölnir/Afturelding - Víkingur 2

ÍR - Haukar

KA/Þór - Víkingur

Stjarnan situr hjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×