Íslenski boltinn

Úrslitaleikir fjóra daga í röð í Kórnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik FH og Breiðabliks í úrlsitaleik Lengjubikars karla.
Úr leik FH og Breiðabliks í úrlsitaleik Lengjubikars karla. Mynd/Daníel

Úrslitaleikurinn í Meistarakeppni karla fer ekki fram á grasi eins og áður hafði verið tilkynnt. Leikurinn sem fram fer á mánudaginn var færður af Kaplakrikavelli og inn í Kórinn þar sem er spilað á gervigrasi.

Þetta þýðir að leikurinn í Meistarakeppninni verður fjórði úrslitaleikurinn á jafnmörgum dögum í Kórnum.

FH vann Breiðablik 3-0 í úrslitaleik Lengjubikars karla á föstudaginn, Þór/KA vann 3-2 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikarsins í gær og í kvöld fer fram leikur Vals og KR í Meistarakeppni kvenna.

Leikur FH og KR í Meistarkeppni karla hefst klukkan 18.30 í Kórnum á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×