Fótbolti

Juventus rúllaði yfir Roma

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Iaquinta og Nedved skoruðu báðir fyrir Juve í kvöld.
Iaquinta og Nedved skoruðu báðir fyrir Juve í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Tveir leikir fóru fram í ítalska boltanum í dag. Catania vann óvæntan sigur á Lazio og svo rúllaði Juventus liði Roma upp á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Það var Michele Paolucci sem skoraði eina mark leiksins í sigri Catania á Lazio. Goran Pandev klúðraði vítaspyrnu fyrir Lazio í síðari hálfleik.

Vincenzo Iaquinta skoraði tvívegis fyrir Juventus sem var í miklu stuði í kvöld er það skellti Roma, 1-4.

Olof Mellberg og Pavel Nedved skoruðu hin mörkin fyrir Juve. Simone Loria skoraði mark Roma í leiknum.

Með sigrinum minnkaði Juventus forskot Inter á toppi deildarinnar í fjögur stig en Inter á einn leik inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×