Körfubolti

Mætast KR og Grindavík aftur í úrslitum Powerade-bikarsins?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það var mikil dramatík í úrslitaleikjunum í körfunni í fyrra.
Það var mikil dramatík í úrslitaleikjunum í körfunni í fyrra. Mynd/Daníel
Undanúrslit Powerade-bikars karla fara fram í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Njarðvíkingum á sama tíma og Snæfellingar heimsækja Grindvíkinga í Röstina. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19.15. Sigurvegararnir mætast í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á sunnudaginn.

KR og Grindavík mættust í úrslitaleik Powerade-bikarsins í fyrra þar sem KR-inga unnu 98-95 í frábærum leik. Liðin ættu að eiga góða möguleika á að komast í Höllina þar sem þau eru bæði á heimavelli en mótherjarnir eru þó ekki af slakari gerðinni enda búast margir við að Njarðvíkingar og Snæfellingar berjist um titlana í vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×