Körfubolti

Hildur: Við erum með hörkulið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hildur fagnar hér sigrinum með sínu fólki eftir leik.
Hildur fagnar hér sigrinum með sínu fólki eftir leik. Mynd/E. Stefán

Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, var hæstánægð eftir sigur sinna manna í bikarúrslitaleiknum gegn Keflavík í Laugardalshöllinni í dag.

KR náði góðri forystu strax í upphafi leiksins en leikurinn var svo í járnum allt fram á lokamínútur leiksins er KR náði aftur undirtökunum.

„Þær settu þrist á okkur strax á fyrstu sekúndum leiksins og þá fékk maður aðeins í magann," sagði Hildur í samtali við Vísi eftir leik. „En við svöruðum heldur betur fyrir okkur og sýndum að við vorum tilbúnar í þennan leik. Þó svo að við höfum dottið aðeins niður á kafla í leiknum rifum við okkur aftur upp og náðum fínu forskoti aftur."

„Þetta var frábært að fá að upplifa þetta. KR vann síðast stóran titil árið 2002 og því löngu orðið tímabært. Það hafa allir staðið sig mjög vel í kringum liðið, bæði stjórn og þjálfari."




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×