Íslenski boltinn

Markahæstu leikmennirnir fengu ekki skó

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgólfur Takefusa, markakóngur Pepsi-deildar karla.
Björgólfur Takefusa, markakóngur Pepsi-deildar karla. Mynd/Anton

Eins og tíðkast hefur undanfarin ár fengu markahæstu leikmenn efstu deildar karla og kvenna ekki gull-, silfur- eða bronsskó frá Adidas-umboðinu.

Nú fer fram Samkoma knattspyrnumanna þar sem viðurkenningar eru veittar þeim sem skarað hafa fram úr á tímabilinu.

Þrír markahæstu leikmenn efstu deildar karla og kvenna fengu skjöld fyrir afrek sitt en ekki skó.

Markahæstu leikmenn Pepsi-deildar karla:

1. Björgólfur Takefusa, KR 16 mörk

2. Atli Viðar Björnsson, FH 14 mörk

3. Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 13 mörk

Markahæstu leikmenn Pepsi-deildar kvenna:

1. Kristín Ýr Bjarnadóttir, Val 23 mörk

2. Rakel Hönnudóttir, Þór/KA 23 mörk

3. Mateja Zver, Þóra/KA 20 mörk






Fleiri fréttir

Sjá meira


×