Íslenski boltinn

Ísland og Georgía mætast í fyrsta sinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Frá landsleik á síðasta ári.
Frá landsleik á síðasta ári.

Knattspyrnusambönd Íslands og Georgíu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik á Laugardalsvelli miðvikudaginn 9. september næstkomandi. Frá þessu er greint á vefsíðu KSÍ.

Þetta er í fyrsta skipti sem þjóðirnar mætast á þessum vettvangi en leikurinn kemur í kjölfar leiks Íslands og Noregs í undankeppni HM 2010 sem fer fram laugardaginn 6. september á Laugardalsvelli.

Georgíumenn leika sama laugardag heimaleik gegn Ítölum í undankeppni HM 2010 en þessar þjóðir eru í 8. riðli ásamt Írlandi, Svartfjallalandi, Búlgaríu og Kýpur. Georgía hefur hlotið 2 stig til þessa í riðlinum eftir fjóra leiki. Gerðu jafntefli við Kýpur og Búlgaríu heima en biðu lægri hlut gegn Ítölum á útivelli og Írum en sá leikur var leikinn í Mainz í Þýskalandi vegna óstöðugs ástands í Tiblisi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×