Fótbolti

Félagi Emils gleypti tunguna og var fluttur á sjúkrahús

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Hallfreðsson.
Emil Hallfreðsson. Mynd/AFP

Emil Hallfreðsson kom inn á hjá Reggina við óhugnarlega aðstæður í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Emil kom inn fyrir Andrea Costa sem hafi gleypt tunguna og misst meðvitund.

Costa, sem er varnarmaður, var fluttur á sjúkrahús en náði sér fljótt og verður ekki meint af þessu óhappi.

Costa lenti í samstuði á 70. mínútu leiksins og sjúkraþjálfari Reggina liðsins bjargaði honum með því að toga tunguna úr koki hans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×