Fótbolti

Umboðsmaður: Zlatan fer hvergi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter.
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Inter. Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður sænska landsliðsmannsins Zlatan Ibrahimovic segir hann ekki á leið frá Inter á Ítalíu.

Ítalskir fjölmiðlar voru duglegir að greina frá því að Zlatan vildi fara frá Inter, sér í lagi eftir að liðið datt úr leik í Meistaradeild Evrópu.

Umboðsmaður hans, Mino Raiola, segir það hins vegar rangt. „Það hefur verið að tala um að það þurfi að sannfæra Zlatan um að vera áfram en það sagði enginn að hann væri á leiðinni burt."

„Ef Jose Mourinho vill fá fund með honum er það hans mál en ég sé enga þörf á því. Það eru engin vandamál hjá Zlatan. Hann á gott samband við Mourinho og félagið."

„Hann varð vissulega fyrir vonbrigðum er liðið féll úr leik í Meistaradeildinni en hann sagðist aldrei vilja fara."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×