Íslenski boltinn

KA-menn unnu topplið Selfoss fyrir norðan

Óskar ófeigur Jónsson skrifar
KA-menn eru til alls líklegir í 1.deildinni í sumar.
KA-menn eru til alls líklegir í 1.deildinni í sumar. Mynd/Arnþór

KA stöðvaði sigurgöngu Selfoss í 1. deild karla með 2-0 sigri í leik liðanna á Akureyrarvellinum í dag. Það voru þeir Bjarni Pálmason og David Disztl sem skoruðu mörk KA.

Selfoss hefði getað náð átta stiga forskoti á toppnum með sigri en KA er nú sex stigum á eftir Selfyssingum eftir þennan leik.

Bjarni Pálmason skoraði sitt mark strax á 12. mínútu leiksins en mark David Disztl kom 14 mínútum fyrir leikslok.

Það urðu einnig nokkuð óvænt úrslit í Mosfellsbænum þegar heimamenn í Aftureldingu unnu Fjarðabyggð 3-2 en Austfirðingar hefðu getað minnkað forskot Selfoss niður í fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×