Íslenski boltinn

Dregið í 16-liða úrslit VISA bikars karla á mánudag

Ómar Þorgeirsson skrifar
Bikarmeistarar KR verða í pottinum á mánudaginn.
Bikarmeistarar KR verða í pottinum á mánudaginn. Mynd/Valli

Síðustu leikjunum í 32-liða úrslitum VISA bikars karla í fótbolta lauk í gærkvöldi þegar ellefu leikir fóru fram.

Það liggur því ljóst fyrir hvaða 16 lið verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit keppninnar á mánudaginn.

Athygli vekur að enn eru þrjú 2. deildarlið með í keppninni en það eru Reynir, Víðir og Höttur.

Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og hefst kl. 12.

Félögin sem verða í pottinum eru:

Fjarðabyggð

Þór

Höttur

Reynir S.

Fram

KA

ÍBV

Víðir

KR

Breiðablik

HK

Fylkir

FH

Valur

Grindavík

Keflavík
































Fleiri fréttir

Sjá meira


×