Fótbolti

Ribery í stað Kaka

NordicPhotos/GettyImages

Franck Ribery er efstur á óskalista AC Milan ef Kaka verður seldur frá félaginu. Þetta fullyrða franskir fjölmiðlar í morgun.

Franska blaðið Le Parisien segir að Milan sé þegar búið að setja sig í samband við Bayern Munchen og bjóða 35 milljónir evra í franska landsliðsmanninn Ribery - fari svo að Brasilíumaðurinn Kaka verði seldur til Manchester City á næstu dögum.

Ljóst þykir að Bayern mun ekki verða hrifið af því að selja einn sinn allra besta leikmann, en franska blaðið heldur því fram að Milan gæti jafnvel boðið Massimo Oddo með í kaupunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×