Íslenski boltinn

Keflvíkingar slógu FH-inga út úr bikarnum annað árið í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Símun Samuelsen er búinn að eiga mjög góðan leik hjá Keflavík.
Símun Samuelsen er búinn að eiga mjög góðan leik hjá Keflavík. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson

Keflvíkingar halda áfram að reynast Íslandsmeisturum FH-inga afar erfiðir eftir að þeir slógu þá út úr VISA-bikarnum annað árið í röð með 3-1 sigri á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Símun Samuelsen skoraði tvö mörk Keflvíkinga, lagði upp það þriðja og átti mestan þátt í að Keflvíkingar eru komnir i undanúrslitaleikinn.

Keflvíingar hertu enn takið sitt á FH-ingum með þessum sigri í kvöld. Keflavík hefur nú tekið fjögur stig á móti FH í Pepsi-deildinni og slegið þá út úr bikarnum. Keflavík er eina íslenska liðið sem hefur tekið stig af meisturum á þessu tímabili.

Færeyingurinn Símun Samuelsen átti sannkallaðan stórleik í gær og réðu FH-ingar hreinlega ekkert við hann. Simun átti stóran þátt í fyrsta marki leiksins sem var sjálfsmark Tommy Nielsen 20. mínútu en hann bætti um betur með því að skora tvö mörk á fyrstu þrettán mínútunum í seini hálfleik.

Skömmu eftir að Keflvíkingar komust 3-0 yfir misstu þeir mann af velli þegar Garðar Örn Hinriksson gaf Jóhanni Birni Guðmundssyni sitt annað gula spjald. FH-ingar tóku í kjölfarið öll völd á vellinum einum manni fleiri og Atli Guðnason minnkaði muninn í 3-1 á 71. mínútu. FH-ingar skoruðu fljótlega tvö mörk til viðbótar en þau voru bæði dæmd af vegna rangstöðu.

FH-ingar reyndu allt sem þeir gátu til að minnka muninn það sem eftir lifði leiksins og oft skall hurð nærri hælum en þeir náðu þó ekki að bæta við fleiri mörkum. Lasse Jörgensen var alltaf réttur maður á réttum stað í marki Keflavíkur sama hvað þeir reyndu

FH-ingar þurfa því enn á ný að sætta sig við það að detta út úr bikarkeppninni en þrátt fyrir yfirburði og fjóra Íslandsmeistaratitla á síðustu fimm árum hefur þeim aðeins einu sinni tekist að komast alla leið í bikarúrslitaleikinn.

Keflavík - FH 3-1 (1-0)

1-0 Sjálfsmark Tommy Nielsen (20.)

2-0 Símun Samuelsen (48.)

3-0 Símun Samuelsen (58.)

3-1 Atli Guðnason (71.)

Rautt spjald: Jóhann Birnir Guðmundsson (60., tvö gul)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×