Körfubolti

Auðveldir sigrar hjá Stjörnunni og Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úr leik Stjörnunnar og Hamars í kvöld.
Úr leik Stjörnunnar og Hamars í kvöld. Mynd/Valli

Bikarmeistarar Stjörnunnar og Njarðvík komust í kvöld í átta liða úrslit Powerade-bikars karla eftir auðvelda sigra á heimavelli en körfuboltatímabilið hófst með þessum tveimur leikjum.

Stjarnan vann 103-83 sigur á nýliðum Hamars þar sem Jovan Zdravevski fór á kostum, hitti úr 14 af 17 skotum sínum og skoraði 38 stig. Justin Shouse var með 22 stig en Andre Dabney skoraði 26 stig fyrir Hamar.

Njarðvík vann einnig öruggan 81-66 sigur á nýliðum Fjölnis þar sem enginn réði við Friðrik Stefánsson sem gældi við tröllatvennu með því að skora 19 stig og taka 16 fráköst. Jóhgann Árni Ólafsson kom honum næstur hjá Njarðvík með 10 stig en Zachary Johnson skoraði 16 stig fyrir Fjölni.

Stjarnan heimsækir Snæfell í átta liða úrslitunum á sunnudaginn á sama tíma og Njarðvíkingar fara í heimsókn til nágranna sinna í Keflavík.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×