Íslenski boltinn

Haukar upp í annað sætið og langþráður Skagasigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukar eru tveimur stigum á undan liðunum í 3.  og 4. sæti.
Haukar eru tveimur stigum á undan liðunum í 3. og 4. sæti. Mynd/Valli

Haukar komust upp í annað sætið í 1. deild karla í kvöld á sama tíma og Skagamenn unnu sinn fyrsta sigur í heilan mánuð.

Haukar unnu 3-0 sigur á Aftureldingu. Haukar eru með 25 stig, tveimur meira en HK og Fjarðabyggð sem eru í næstu sætum. Garðar Geirsson skoraði tvö mörk og Guðjón Lýðsson var með eitt.

Skagamenn unnu langþráðan sigur þegar liðið vann Fjarðabyggð 3-1 á heimavelli. Fjarðabyggð var í 2. sæti fyrir þessa umferð. Andri Júlíusson, Helgi Pétur Magnússon og Ragnar Leósson skoruðu mörk Skagamanna sem unnu sinn fyrsta sigur síðan 26. júní.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×