Valur vann í oddaleik í báðum einvígum bræðranna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2009 17:45 Valur Ingimundarson hefur haft betur gegn bróður sínum í úrslitakeppninni. Mynd/Daníel
Einvígi Keflavíkur og Njarðvíkur í átta liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla er ekki bara einvígi erkifjendanna og nágrannanna úr Reykjanesbæ heldur einnig einvígi bræðranna Sigurðar og Vals Ingimundarsona. Þeir eru nú að mætast í Þriðja sinn sem þjálfarar í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla. Sigurður Ingimundarson er að fara með lið í úrslitakeppni í tólfta sinn en undir hans stjórn hafa lið unnið 58 af 86 leikjum sínum í úrslitakeppni (67,4 prósent) og alls hampað Íslandsmeistaratitlinum fimm sinnum. Valur Ingimundarson er að fara með lið í úrslitakeppni í tólfta sinn en undir hans stjórn hafa lið unnið 35 af 65 leikjum sínum í úrslitakeppni (53,8 prósent) og alls hampað Íslandsmeistaratitlinum þrisvar sinnum. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem lið þeirra mætast í úrslitakeppni en það gerðist einnig árið 2001 þegar Valur var með Tindastól og árið 2006 þegar Valur var með Skallagrím. Sigurður þjálfaði Keflavík þá alveg eins og nú. Í báðum einvígum hefur Valur unnið einvígið eftir oddaleik. Tindastóll vann Keflavík 3-2 í undaúrslitum 2001 og Skallagrímur vann Keflavík 3-2 í undanúrslitum 2006. Þetta er aftur á móti í fyrsta sinn sem þeir bræður mætast í einvígi þar sem þarf "bara" að vinna tvo leiki til þess að komast áfram. Síðasta viðureign bræðranna í oddaleik í undanúrslitunum 2006 er eini leikurinn af tíu innbyrðisviðureignum liða þeirra sem hefur ekki unnist á heimavelli. Þetta er líka í eina skiptið sem annar bróðurinn hefur unnið tvo leiki í röð á móti hinum í úrslitakeppni. Valur kemur því inn í þetta einvígið með tvo sigra í röð á yngri bróður sínum í úrslitakeppni. Þróun mála í einvígum bræðranna í úrslitakeppni: Undanúrslit 2001 Leikur 1 - Tindastóll-Keflavík 109-87Leikur 2 - Keflavík-Tindstóll 106-90Leikur 3 - Tindastóll-Keflavík 96-92Leikur 4 - Keflavík-Tindastóll 67-66Leikur 5 - Tindastóll-Keflavík 70-65Tindastóll vann 3-2 Undanúrslit 2006 Leikur 1 - Keflavík-Skallagrímur 97-82Leikur 2 - Skallagrímur-Keflavík 94-76Leikur 3 - Keflavík-Skallagrímur 129-79Leikur 4 - Skallagrímur-Keflavík 94-85Leikur 5 - Keflavík-Skallagrímur 80-84Skallagrímur vann 3-2 Samantekt úr 10 innbyrðisleikjum í úrslitakeppni: 6 sigrar hjá liðum Vals 4 sigrar hjá liðum Sigurðar 9 sigrar hjá heimaliðunum 1 sigur hjá útiliðunum
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira