Körfubolti

Einar Árni tekur sér frí frá meistaraflokksþjálfun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Einar Árni Jóhannsson er aftur kominn heim til Njarðvíkur.
Einar Árni Jóhannsson er aftur kominn heim til Njarðvíkur. Mynd/Daníel

Einar Árni Jóhannsson, fráfarandi þjálfari Breiðabliks í Iceland Express deild karla, mun ekki þjálfa meistaraflokk á næsta ári.

Einar Árni er kominn aftur í Njarðvík þar sem hann verður yfirþjálfari yngri flokka félagsins næstu fimm árin. Þetta kemur fram á Karfan.is.

Einar Árni er úr Njarðvík og var búinn að þjálfa í fimmtán ár hjá félaginu þegar hann fór til Breiðabliks sumarið 2007. Hann kom Blikum upp í úrvalsdeild á fyrsta ári og síðan inn í úrslitakeppnina á öðru ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×