Fótbolti

Maldini: Það verður sorglegt að hætta

AFP

Goðsögnin Paolo Maldini hjá AC Milan segist kvíða nokkuð fyrir því að þurfa að hengja skóna á hilluna í lok leiktíðar.

Maldini, sem almennt er álitinn einn besti varnarmaður allra tíma, hefur verið í herbúðum Milan allar götur síðan 1978 þegar hann var smápatti.

"Ég hef oft hugsað til þess hvernig það verður að hætta og ég verð dapur þegar kemur að því. Ég mun þó komast yfir það, því fóboltinn hefur gefið mér mikið innan sem utan vallar. Þegar ég hætti get ég huggað mig við að ég hef unnið marga titla og upplifað margar gleðistundir á vellinum," sagði Maldini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×