Fótbolti

Vieira verður áfram hjá Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Patrick Vieira hjá Inter.
Patrick Vieira hjá Inter. Nordic Photos / AFP

Patrick Vieira er sagður ætla vera áfram í herbúðum Inter Milan á Ítalíu en hann hefur undanfarið verið orðaður við Arsenal og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Vieira lék lengi með Arsenal en Arsene Wenger, knattspyrnustjóri liðsins, keypti hann frá AC Milan árið 1996.

En samkvæmt heimildum fréttastofu Sky Sports ætlar Vieira að vera áfram hjá Inter.

Hann var sagður vilja fara annað svo hann gæti fengið að spila meira og auka líkur sínar á að spila með franska landsliðinu á HM í Suður-Afríku á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×