Fótbolti

Sigurður Ragnar: Höfðum yfirburði í fyrri hálfleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari. Mynd/Valli

„Heilt yfir fannst mér þetta frekar sanngjörn úrslit. Bæði lið fengu góð færi og það var margt jákvætt í þessum leik," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari eftir jafntefli hans stúlkna gegn Hollandi í dag.

„Það sem mér fannst jákvæðast var að við náðum oft upp góðu samspili og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Mér fannst við hafa töluverða yfirburði í fyrri hálfleiknum.

„Við hleypum Hollendingum síðan of mikið inn í leikinn í síðari hálfleik. Það sem við þurfum að lagfæra og bæta er uppspilið í liðinu. Vera öruggari á boltanum og dreifa spilinu betur," sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×