Sigurður tryggði Snæfelli sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. febrúar 2009 20:42 Sigurður Þorvaldsson, leikmaður Snæfells. Mynd/Stefán
Sigurður Þorvaldsson tryggði Snæfelli nauman sigur á FSu, 68-67, með körfu á lokasekúndu leiksins á Selfossi í kvöld. ÍR vann Skallagrím í Borgarnesi, 67-59, og Grindavík vann stórsigur á Breiðabliki á heimavelli, 112-60. Leikur FSu og Snæfells var æsispennandi en staðan í hálfleik var 42-34, Snæfelli í vil. FSu náði hins vegar að koma sér vel inn í leikinn í síðari hálfleik og var með yfirhöndina, 67-65, þegar ein og hálf mínúta var til leiksloka. Lucious Wagner minnkaði muninn í eitt stig er hann nýtti annað tveggja vítakasta sem hann fékk og Sigurður tryggði svo sigurinn með sniðskoti á lokasekúndunni sem fyrr segir. Wagner var stigahæstur Snæfellinga með 20 stig, Slobodan Subasic skoraði sautjánog Sigurður fjórtán. Hjá FSu var Sævar Sigmundsson stigahæstur með 22 stig en hann tók einnig fimmtán fráköst. Vésteinn Sveinsson kom næstur með nítján. ÍR-ingar höfðu eins stigs forystu gegn Skallagrími í hálfleik, 30-29, í leik liðanna í kvöld. Þeir náðu hins vegar undirtökunum í þriðja leikhluta sem þeir unnu 27-17 og reyndist sá munur of mikill fyrir heimamenn. Sveinbjörn Claessen skoraði 27 stig fyrir ÍR og Hreggviður Magnússon átján. Hjá Skallagrími var Igor Beljanski stigahæstur með átján stig en Landon Quick kom næstur mðe fjórtán. Sex leikmenn skoruðu meira en tíu stig fyrir Grindavík í stórsigri liðsins á Breiðabliki. Þorleifur Ólafsson skoraði átján og Guðlaugur Eyjólfsson sautján.Hjá Breiðabliki var Nemanja Sovic stigahæstur með 20 stig. Grindavík kom sér í efsta sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er með 34 stig, rétt eins og KR sem á leik til góða. Grindavík er með betri innbyrðis árangur í viðureignum liðanna. Snæfell er í þriðja sætinu með 26 stig, ÍR í því sjöunda með sextán, FSu og Breiðablik eru með fjórtán og Skallagrímur í neðsta sætinu með fjögur.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira