Fótbolti

Inter búið að vinna jafnmarga titla og AC Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jose Mourinho er búinn að gera frábæra hluti með Inter,
Jose Mourinho er búinn að gera frábæra hluti með Inter, Nordic Photos/Getty Images

Ítalíumeistaratitill Inter í kvöld skipti stuðningsmenn félagsins gríðarlega miklu máli. Þeir hafa nefnilega jafnað erkifjendurna í AC Milan í titlum.

Bæði félög hafa nefnilega núna unnið 17 meistaratitla. Inter er búið að vinna fjögur ár í röð.

Liðin eiga þó nokkuð í land með að ná Juventus sem hefur unnið flesta titla allra liða á Ítalíu eða 27 stykki.

Milan og Inter koma svo næst. Genoa kemur þar á eftir með 9 meistaratitla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×