Fótbolti

Þjálfari Hollands: Ísland er lélegasta liðið sem við höfum mætt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bert Van Marwijk á æfingu á Laugardalsvelli.
Bert Van Marwijk á æfingu á Laugardalsvelli.

Landsliðsþjálfari Hollands, Bert Van Marwijk, var ekki hrifinn af því sem Ísland bauð upp á gegn Hollandi á Laugardalsvelli í gær.

„Ég naut fyrri hálfleiksins en seinni var ekki eins góður þar sem við nýttum ekki færin okkar. Við eigum að skora að minnsta kosti fjögur til fimm mörk á þetta íslenska lið sem er það lélegasta sem við höfum mætt í riðlinum," segir Van Marwijk á heimasíðu FIFA.

Van Marwijk segir að það megi hrósa sínu liði mun meira en hefur verið gert enda sé Holland fyrsta Evrópuþjóðin til þess að tryggja sig á HM.

Liðið hefur unnið alla leiki sína í riðlinum, skorað 14 mörk og aðeins fengið á sig 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×