Íslenski boltinn

Frétt um framboð Þórðar sló í gegn á BBC

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórður er enn vinsæll á Englandi.
Þórður er enn vinsæll á Englandi. Mynd/Arnþór

Eins og Vísir greindi frá í gær þá hefur framboð Þórðar Guðjónssonar knattspyrnumanns vakið heimsathygli.

Reuters-fréttastofan var með viðtal við Þórð, þýskir miðlar greindu frá málinu sem og BBC-fréttastofan í Bretlandi.

Bretar virðist hafa mikinn áhuga á Þórði því fréttin um hann á vef BBC var sú næstmest lesna á íþróttahluta vefsins í gær.

Alls lásu tæplega 119 þúsund manns fréttina um Þórð en aðeins frétt um greiðslustöðvun Darlington var meira lesin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×