Körfubolti

ÍG bjargaði Hetti frá falli í 2. deild

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel

Það hefur orðið breyting á liðum í 1. deild karla í körfubolta þrátt fyrir að nú sé mitt sumar. Það hefur einnig verið dregið í töfluröð í deildinni.

Lið ÍG frá Grindavík sem vann sér rétt í 1. deild á næsta tímabili gaf sæti sitt frá sér. Liði Hattar frá Egilsstöðum, sem féll úr deildinni, hefur verið boðið sætið og þáðu þeir það.

Höttur endaði í 9. sæti 1. deildar á síðasta tímabili og féll í 2. deild en eru nú komnir á ný í næst efstu deild karla.

Liðin sem mætast í 1. umferð 1. deildar karla:

Haukar - Skallagrímur

Valur - UMF Hrunamanna

KFÍ - Þór Ak.

Höttur - Ármann

ÍA - Þór Þorlákshöfn








Fleiri fréttir

Sjá meira


×