Handbolti

FH og Haukar í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Karen Knútsdóttir tekur skot að marki FH.
Karen Knútsdóttir tekur skot að marki FH.

Fram og Haukar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppni kvenna í handbolta.

FH vann sigur á Fram, 29-27, eftir að FH var með fjögurra marka forystu í hálfleik, 15-11.

Ragnhildur Guðmundsdóttir skoraði tíu mörk fyrir FH en þær Guðrún Helga Tryggvadóttir, Gunnur Sveinsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir fjögur hver.

Hjá Fram var Stella Sigurðardóttir markahæst með ellefu mörk. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði fjögur mörk og þær Karen Knútsdóttir og Pavla Nevarilova þrjú hvor.

Þá unnu Haukar sigur á Fylki í Árbænum, 33-27. Hanna G. Stefánsdóttir skoraði tólf mörk fyrir Hauka í leiknum og Erna Þráinsdóttir sex. Sunna Jónsdóttir skoraði þrettán mörk fyrir Fylki og Sunna María Einarsdóttir sex.

Haukar, FH, Stjarnan og KA/Þór eru þar með komin í undanúrslit keppninnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×